EAS vörurnar eru leiðandi í flokki fæðubótarefna.  EAS mynda ýmist kjarnann í heilbrigðu mataræði eða eru skynsamleg viðbót við hollt og næringarríkt fæðuval. Kjörorð EAS eru; orka - grenning - styrkur. Markmið EAS er að vera fremst í þekkingu sem aflað er með vísindarannsóknum á sviði næringarfræði. EAS stefnir að því að nýta þá þekkingu til að framleiða árangursríkustu og öruggustu fæðubótarefnin fyrir fólk sem stundar íþróttir, líkamsrækt og lifir heilsusamlegu lífi.  Við einbeitum okkur að því að þróa skilning á fæðubótarefnum þessum og ýta undir ábyrga notkun á þeim með hjálp áætlunar sem byggir á þjálfun og heilbrigðum lífsvenjum. Þannig má ná fram betri árangri, bæði líkamlegum og andlegum hjá öllum þeim sem vilja gera sitt albesta og enn betur.

Sjá nánar um EAS á www.eas.is.